Regína Diljá Jónsdóttir

Regína Diljá Jónsdóttir

Kaupa Í körfu

"Viltu rjómaís?" spyr lítill búðarmaður. "Hann kostar bara sexhundruð," segir hann ákveðið og blaðamaður getur ekki hafnað slíku kostaboði og heldur því á ímynduðum rjómaís þegar hann hittir fegurðardrottninguna Regínu Diljá Jónsdóttur. Regína, sem vinnur á leikskólanum Arnarsmára, lenti í þriðja sæti í keppninni um ungfrú Ísland í vor. Hún var á leið til Kína til að taka þátt í Miss World þegar Fólkið ræddi við hana. Hún fór út 7. nóvember en keppnin verður á morgun, laugardag, og sýnir Skjár einn frá henni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar