Vopnað rán í Bónus Kópavogi

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Vopnað rán í Bónus Kópavogi

Kaupa Í körfu

Tveir ránsmenn handteknir á Hafravatnsvegi hálftíma síðar Vopnað rán var framið í verslun Bónuss á Smiðjuvegi 2 laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Tveir menn, vopnaðir afsöguðum haglabyssum og með andlitið hulið, ruddust inn um vöruafgreiðslu verslunarinnar eftir lokun og ógnuðu starfsfólki. Myndatexti: Lögreglan í Reykjavík handtók mennina á Hafravatnsvegi. Fjölmennu liði var stefnt á staðinn til aðstoðar lögreglumönnum sem fundið höfðu bílinn, þar sem tilkynnt var að mennirnir væru vopnaðir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar