Árekstur í Gilinu á Akureyri

Kristján Kristjánsson

Árekstur í Gilinu á Akureyri

Kaupa Í körfu

Átta bílar í einni kös ÁTTA bílar lentu í einni kös í Kaupvangsstæti ofan við mót Eyrarlandsvegar eftir hádegi í gær. Þorsteinn Pétursson lögreglumaður sem var á vettvangi sagði að ekki lægi fyllilega ljóst fyrir hver upptök árekstursins væru. Hann varð skömmu eftir útför frá Akureyrarkirkju og var margt manna á leið frá kirkjunni og var fjölda bíla lagt upp með Kaupvangsstræti svo sem vani er þegar athöfn er í kirkjunni. MYNDATEXTI: Lögregla og bílaeigendur skoða verksummerki á bílastæði í Gilinu, þar sem átta bílar runnu saman í mikilli hálku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar