Á góðum degi - Sigurþór og Alfreð

Gunnlaugur Árnason

Á góðum degi - Sigurþór og Alfreð

Kaupa Í körfu

Kraftar Stykkishólmur | Þeir eru kampakátir starfsmennirnir á dekkjaverkstæðinu "Dekk og smur" í Stykkishólmi. Það hefur verið nóg að gera hjá þeim á undanförnum dögum, því veturinn er að minna á sig þessa dagana. Það gafst þó tími til að slá á létta strengi. Það reynist Sigurþóri Hjörleifssyni, eiganda fyrirtækisins, ekki erfitt að taka starfsmann sinn, Alfreð Þórólfsson, í fangið og bera hann inn í kaffistofuna að afloknum góðum degi. Myndin sýnir að Sigurþór er í góðu formi rétt orðinn sextugur, enda setti hann mörg metin í frjálsum íþróttum hér áður fyrr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar