Jenni Hietanoro og Bryndís Jóhannsdóttir með snjókarl

Kristján Kristjánsson

Jenni Hietanoro og Bryndís Jóhannsdóttir með snjókarl

Kaupa Í körfu

Glæsilegur snjókarl stendur í garðinum við gistiheimilið Gulu Villuna við Þingvallastræti á Akureyri. Þar getur þetta tveggja metra háa glæsimenni fylgst með þungri umferð Þingvallastrætis. Líklegra er þó að ökumenn freistist til að kíkja út um hliðarrúðuna til að berja karlinn augum. Segja má að alþjóðleg samvinna hafi verið um gerð sjókarlsins, því á gistiheimilinu búa námsmenn víða að úr heiminum, gistinemar við Háskólann á Akureyri. Það voru Finni, Frakki, Þjóðverji og Íslendingur sem lögð hönd á plóg við gerð karlsins, en þar eru líka nemar frá Kína og Bandaríkjunum. MYNDATEXTI: Jenni Hietanoro frá Finnlandi t.v. og Bryndís Jóhannsdóttir úr Reykjavík setja trefil á snjókarlinn góða í garðinum við Gulu Villuna við Þingvallastræti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar