Smáraskóli Kópavogi

Jim Smart

Smáraskóli Kópavogi

Kaupa Í körfu

Tveir tónlistarkennarar frá Guildhall School of Music and Drama í London, Sigrún Sævarsdóttir og Paul Griffiths, eru nú staddir hér á landi á vegum Listaháskóla Íslands og halda námskeið fyrir nemendur kennaradeilda, með þátttöku 11 og 15 ára barna úr Smáraskóla, 11 ára barna í Öskjuhlíðarskóla og hljóðfæranema við Nýja tónlistarskólann. Í námskeiðinu felst að kennaranemunum er leiðbeint með það hvernig virkja má grunnskólanemendur jafnt sem tónlistarskólanemendur í sköpun eigin tónlistar og sameiginlegri tónlistariðkun. MYNDATEXTI: Ungur Kópavogsbúi æfir eigið sóló á saxófón meðan Paul Griffiths skaffar rytmann á gítar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar