Hestur á Álftanesi

Brynjar Gauti

Hestur á Álftanesi

Kaupa Í körfu

Jólaskreytingum fjölgar með hverjum deginum sem líður að jólum. Í dag er þriðji sunnudagur í aðventu og næsta víst að margir nýti tækifærið til að færa hús sín í fallegan jólabúning. Ekki má gleyma að njóta fegurðarinnar sem fylgir þessum árstíma. Þrátt fyrir að hesturinn á myndinni snúi afturendanum í ljósadýrðina í Hafnarfirði fylgir honum ró og áminning um, að okkur er hollt að líta upp frá því sem við höfum fyrir stafni, staldra við og líta í kringum okkur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar