Landssíminn við Austurvöll flytur - Eva Magnúsdóttir

Ásdís Ásgeirsdóttir

Landssíminn við Austurvöll flytur - Eva Magnúsdóttir

Kaupa Í körfu

Landssíminn kveður gamla Landsímahúsið við Austurvöll eftir sjötíu ára starfsemi Stórum hluta sögu Landssímans lauk í gær og nýr tók við þegar fyrirtækið flutti höfuðstöðvar sínar að fullu úr húsnæði sínu til rúmra sjötíu ára, Landsímahúsinu við Austurvöll. Ljóst þótti að húsið var bæði of lítið og gamalt til að hýsa bæði umfangsmikla og tæknilega flókna starfsemi Landssímans og hefur því mestöll starfsemi fyrirtækisins flust yfir í framtíðarhúsnæði Landssímans í Ármúla. Miðbæjarsímstöðin verður þó áfram rekin í 1.500 fermetra rými í húsinu og munu nokkrir starfsmenn áfram hafa aðsetur þar við gæslu stöðvarinnar. MYNDATEXTI: Eva Magnúsdóttir, upplýsingafulltrúi Landssímans, við nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins í Ármúla. Rúmlega 700 starfsmenn Landssímans starfa nú í og kringum húsaþyrpinguna í Ármúla.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar