Skíðafélag Akureyrar - ÍSÍ

Kristján Kristjánsson

Skíðafélag Akureyrar - ÍSÍ

Kaupa Í körfu

SKÍÐAFÉLAG Akureyrar, SKA, fékk í gær afhent viðurkenningarskjal fyrir barna- og unglingastarf og hefur félagið jafnframt rétt til þess að kalla sig Fyrirmyndarfélag ÍSÍ til næstu fjögurra ára. SKA er fyrsta félagið á landsbyggðinni sem hlýtur þessa viðurkenningu en alls hafa 8 íþróttafélög í landinu náð þeim áfanga. Ellert B. Schram, forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, afhenti Tómasi Inga Jónssyni, formanni SKA, skjalið við hátíðlega athöfn í Íþróttahöllinni. MYNDATEXTI: Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, afhenti Tómasi Inga Jónssyni, formanni SKA, skjal til staðfestingar á því að félagið væri Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Ellert B.Schram forseti ÍSÍ afhenti Tómasi Inga Jónssyni formanni SKA skjal til staðfestingar á því að félagið væri Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar