Litlulaugaskóli - verðlaunahafar

Atli Vigfússon

Litlulaugaskóli - verðlaunahafar

Kaupa Í körfu

| Söngur og gleði var aðaleinkenni skemmtisamkomu sem nemendur Litlulaugaskóla í Reykjadal efndu til á dögunum og fjölmenntu foreldrar, afar og ömmur, ættingjar og vinir til þess að sjá og heyra allt það sem var á boðstólum. Um var að ræða rúmlega tveggja tíma samkomu sem byrjaði með söng litla kórsins, þ.e. 1.-3. bekkjar, við undirleik Margot Kiis tónlistarkennara. Hélt dagskráin síðan áfram með léttu gríni m.a. með foreldrum uppi á sviði og mörgum söngatriðum. Þá var og sýnd kvikmynd úr lífinu í Reykjadal sem nemendur gerðu sjálfir undir leiðsögn kennara og skólahljómsveitin Helþoka flutti tvö dægurlög. MYNDATEXTI: Verðlaunahafarnir Gunnar Sigfússon, Hjalti R. Jónsson og Jón Arnar Sighvatsson ásamt Baldri Daníelssyni skólastjóra og Birnu Björnsdóttur kennara.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar