Jólaljós - Urriðakvísl 3

Jólaljós - Urriðakvísl 3

Kaupa Í körfu

SKREYTINGAR Jólin eru nefnd hátíð ljóssins. Að vissu leyti eru þetta öfugmæli enda ganga þau í garð á myrkasta tíma ársins. Á hinn bóginn bera þau með sér væntingar um bjartari tíð með hækkandi sól. ....... Einn af þeim sem var fyrstur til þess í borginni að skreyta íbúðarhús sitt í bak og fyrir með glæsilegum ljósaseríum var Smári Ingvarsson sem býr í Urriðahvísl 3 í Reykjavík. "Ég er líklega búinn að gera þetta í ein fjórtán ár en kannski ekki alveg svona mikið allan tímann," segir hann og vísar þar með til ævintýraljósalandsins í og við húsið hans. "Mér finnst mjög gaman að lífga svolítið upp á skammdegið með þessu og hafa fallegt í kringum mig." MYNDATEXTI: Urriðakvísl 3 í Reykjavík: Seríurnar og skreytingarnar koma flestar frá landi jólaljósanna enda töluvert ódýrari þar en hér heima. "Þetta er allt keypt í Ameríku nema það sem er í gluggunum inni," segir Smári.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar