Kárahnjúkavirkjun - Jökla stífluð
Kaupa Í körfu
Sögulegum áfanga var í gær náð í Kárahnjúkavirkjun þegar Jöklu var veitt í hjáveitugöng. Þau munu leiða ána fram hjá Kárahnjúkastíflu meðan hún er í byggingu ........... Í dagrenningu í gærmorgun var hafist handa við að ryðja efni, bæði fínni og grófri möl og stórgrýti í árfarveg Jöklu, skammt neðan við væntanlegt stíflustæði Kárahnjúkastíflu. Undangengna daga var búið að ryðja að ánni, sem er eitthvað um 18 metra breið og 8 metra djúp á þessum kafla, og var aðeins lokahnykkurinn eftir til að loka fyrir vatnsrennslið. Var það gert með öflugri jarðýtu og stórvirk grafa mokaði upp efni sem jafnharðan var ýtt ofan í árfarveginn. Stórir vörubílar biðu svo í röðum með risavaxna, samanspyrta grjóthnullunga, sem sturtað var í fyllinguna. MYNDATEXTI: Jökla rennur settlega út í sinn gamla farveg eftir rúmlega 800 metra langt ferðalag í nýjum hjáveitugöngum Kárahnjúkavirkjunar. Ómar Valdimarsson, kynningarfulltrúi Impregilo S.p.A., gaumgæfir rennslið.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir