Fulltrúar Vísinda- og tækniráðs

Jim Smart

Fulltrúar Vísinda- og tækniráðs

Kaupa Í körfu

Framlög til samkeppnissjóða tvöfaldast á kjörtímabilinu Framlag ríkisins til svokallaðra samkeppnissjóða verður tvöfaldað á næstu fjórum árum og hyggst ríkisstjórnin beita sér fyrir auknu vægi slíkra sjóða við fjármögnun rannsókna. Ráðstöfunarfé þessara sjóða var við upphaf núverandi kjörtímabils 850 milljónir króna en á að verða 1.750 milljónir króna við lok þess. Á fjárlögum fyrir 2004 er gert ráð fyrir 400 milljóna króna framlagi aukalega, þar af fara 200 milljónir í Tækniþróunarsjóð sem stofnaður var fyrr á þessu ári og 100 milljónir til verkefna sem stefna að því að auka verðmæti sjávarfangs. MYNDATEXTI: Fulltrúar vísinda- og tækniráðs; Hallgrímur Jónasson, Tómas Ingi Olrich, Davíð Oddsson, Valgerður Sverrisdóttir og Hafliði P. Gíslason.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar