Líknar- og hjálparsjóður lögreglunnar

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Líknar- og hjálparsjóður lögreglunnar

Kaupa Í körfu

LÍKNAR- og hjálparsjóður Landssambands lögreglumanna hefur úthlutað 500 þúsund krónum til þriggja fjölskyldna sem eiga um sárt að binda vegna ýmissa áfalla sem dunið hafa yfir. Jóna Júlía Jónsdóttir og börn hennar þrjú fengu 150 þúsund krónur, en heimili þeirra í Þórufelli brann fyrir skömmu. Formaður sjóðsins, Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, og Gissur Guðmundsson, rannsóknarlögreglumaður í Hafnarfirði, afhentu fjölskyldunni gjöfina. Einnig fékk fjölskylda á Seyðisfirði 250 þúsund krónur vegna veikinda innan fjölskyldunnar. Þá fékk fjölskylda ungs manns í Reykjavík 100 þúsund krónur vegna slyss sem maðurinn lenti í fyrir nokkru.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar