Arnar Logi Ólafsson

Jim Smart

Arnar Logi Ólafsson

Kaupa Í körfu

Það eru litlar líkur á að kettirnir Fróði og Kolbeinn fái félagsskap af jólakettinum um þessi jól, ef marka má eiganda þeirra Arnar Loga Ólafsson, 10 ára strák úr Hlíðahverfi. Ekki er nóg með að þeir verði puntaðir í bak og fyrir á aðventunni, heldur fá þeir fjölda jólapakka auk þess sem jólasveinarnir gera sér ferð til að gefa þeim í skóinn. Myndatexti: Góðir félagar: Þeir Kolbeinn og Fróði verða ljósum prýddir yfir hátíðirnar ef húsbóndi þeirra, Arnar Logi, fær að ráða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar