Nýbúadeild í Lækjarskóla

Árni Torfason

Nýbúadeild í Lækjarskóla

Kaupa Í körfu

MENNTUN Kostic frá Rússlandi leikur Þvörusleiki með miklum sóma en hann hefur aðeins verið í skólanum í tvær vikur eins og Agnieszka og systkinin Elwira og Rafat frá Póllandi. Öll spreyta þau sig á íslenskunni í upplestrinum um jólasveinana auk þess að lesa upp á sínu tungumáli. Michat frá Póllandi var sannfærandi sem Stúfur. Hann er í 8. bekk og Marlena systir hans í 3. bekk. Michat segir að jólasveinninn í Póllandi komi fyrst 6. desember og gefi börnunum í skóinn. Svo eru jólin haldin hátíðleg 24. desember. "Við fáum fisk á jólunum og það eru tólf réttir," segir Michat. MYNDATEXTI: Leikræn tilþrif: Michat Þvörusleikir lætur til skarar skríða. Elwira, Kseniya og Agnieszka lesa upp á íslensku, rússnesku og pólsku.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar