Þorláksmessustemning

Þorkell Þorkelsson

Þorláksmessustemning

Kaupa Í körfu

ÁBERANDI færra fólk var á ferð í miðborg Reykjavíkur framan af kvöldi í gær en venjulega á Þorláksmessukvöld. Ekki er ólíklegt að slæm veðurspá hafi fælt fólk frá. Umferðin um götur borgarinnar var einnig tiltölulega róleg. Þótt nokkuð blési varð veðrið ekki eins slæmt og margir höfðu lesið út úr veðurspám og upp úr klukkan níu í gærkvöldi var töluverð hreyfing á fólki, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar, og stefndi í ágætis Þorláksmessukvöld. Góður andi var í fólki á Laugaveginum, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Sem dæmi um það má nefna að nokkrar stúlkur tóku upp á því að dansa við undirleik jólasveinsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar