Jólasveinar

Guðrún Vala Elísdóttir

Jólasveinar

Kaupa Í körfu

| Þessir jólasveinar hringdu bjöllunni hjá fréttaritara og voru að dreifa jólapósti til Borgnesinga. Þeir voru á vegum Sunddeildar Skallagríms sem eins og undanfarin ár, sér um að dreifa jólapósti innanbæjar í fjáröflunarskyni. Jólasveinarnir sögðust hafa gaman að þessum útburði og þeim var ekkert orðið kalt. En þeir máttu ekki vera að því að tefja lengi því þeir áttu eftir að koma talsverðu af jólapósti enn til skila.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar