Jólaball

Ásdís Ásgeirsdóttir

Jólaball

Kaupa Í körfu

Í dag er aðfangadagur jóla, dagurinn sem svo margir hafa beðið eftir undanfarnar vikur, dagurinn sem allt hefur snúist um síðustu dægrin. Og nú er stundin runnin upp. Í kvöld minnumst við, sem höldum upp á jólin, fæðingar Krists, hver með sínum hætti. Eftirvæntingin er sennilega hvað mest hjá börnunum. Þau hafa mörg hver beðið í ofvæni; talið niður dagana;...þrír, tveir, einn og...í dag eru jólin loksins komin. Þau hafa fylgst með jólasveinunum, sem hafa fært þeim, sem fara snemma að sofa, eitthvert lítilræði í skóinn og á jólaböllunum hafa þau sungið jólalög og dansað í kringum vel skreytt jólatré. MYNDATEXTI: Feimin við sveinka. Krakkarnir á jólaballinu hjá Hvammi hf. voru svolítið feimin við jólasveininn. En eftir smátíma tókst honum að bræða hjörtu þeirra og þau sungu saman jólalögin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar