Jólaball

Kristján Kristjánsson

Jólaball

Kaupa Í körfu

Í dag er aðfangadagur jóla, dagurinn sem svo margir hafa beðið eftir undanfarnar vikur, dagurinn sem allt hefur snúist um síðustu dægrin. Og nú er stundin runnin upp. Í kvöld minnumst við, sem höldum upp á jólin, fæðingar Krists, hver með sínum hætti. Eftirvæntingin er sennilega hvað mest hjá börnunum. Þau hafa mörg hver beðið í ofvæni; talið niður dagana;...þrír, tveir, einn og...í dag eru jólin loksins komin. Þau hafa fylgst með jólasveinunum, sem hafa fært þeim, sem fara snemma að sofa, eitthvert lítilræði í skóinn og á jólaböllunum hafa þau sungið jólalög og dansað í kringum vel skreytt jólatré. MYNDATEXTI: Íslenskur skyrgámur? Varla. Á heimasíðu Þjóðmenningarhússins kemur nefnilega fram að íslensku jólasveinarnir séu öldungis óskyldir hinum alþjóðlega rauðklædda Santa Claus. Þeir klæða sig öðruvísi en eiga það þó til að klæða sig í rauð spariföt. Hver veit því nema þetta sé íslenskur jólasveinn í sparifötum eða kannski bara íslenskur jólasveinn í dulargervi. En hvað sem því líður þá voru krakkarnir í Oddeyrarskóla ánægðir með heimsóknina.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar