Barist við tunnurnar í Árbænum

Árni Torfason

Barist við tunnurnar í Árbænum

Kaupa Í körfu

Veðrið Ekki er reiknað með að snjóa leysi á suðvesturhorni landsins í dag eða á morgun, og spáir Veðurstofa Íslands hita um eða undir frostmarki. Heldur léttir til í dag og verður úrkomulítið. Spár fyrir gamlárskvöld gera ráð fyrir leiðindaveðri, en helst gæti ræst úr því á suðvesturhorninu. Þar er búist við stífri norðanátt en vind ætti að lægja seint um kvöldið, og gæti lægt fljótlega eftir miðnætti. Nokkur snjókoma gæti orðið fyrripart dags, og verður hiti rétt undir frostmarki og fer kólnandi þegar líður á daginn. MYNDATEXTI: Veður og færð gerðu mörgum erfitt fyrir í gær, m.a. þessum starfsmönnum borgarinnar í Árbænum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar