Íþróttamaður Hafnarfjarðar

Jim Smart

Íþróttamaður Hafnarfjarðar

Kaupa Í körfu

Ásgeir Örn Hallgrímsson, handknattleiksmaður í Haukum, var í gær valinn "íþróttamaður Hafnarfjarðar 2003" á viðurkenningarhátíð sem haldin var í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Ásgeir er Íslands- og deildarmeistari með meistaraflokki karla í Haukum og einnig Evrópumeistari með unglingalandsliðinu þar sem hann var fyrirliði og markakóngur og var valinn í lið Evrópumótsins 2003. Þykir hann hafa staðið sig með stökustu prýði og verið íþrótt sinni til sóma og mikil fyrirmynd fyrir ungt fólk. MYNDATEXTI: Íþróttamaður ársins í Hafnarfirði: Ásgeir Örn Hallgrímsson tók hróðugur við verðlaunabikarnum í íþróttahúsinu við Suðurgötu af Lúðvík Geirssyni

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar