Véltæknisafn Valdimars Benediktssonar

Steinunn Ásmundsdóttir

Véltæknisafn Valdimars Benediktssonar

Kaupa Í körfu

Neðan við bæjarskrifstofurnar á Egilsstöðum standa tæplega tvö hundruð gamlir bílar sem bjargað hefur verið frá glötun. ........... Valdimar Benediktsson hefur verið forfallinn bílaáhugamaður frá blautu barnsbeini, ......... Hann byggði 500 fermetra vélsmiðju á Egilsstöðum í kringum 1978 og hún, ásamt 7.000 fermetra lóð umhverfis, hefur nú að geyma gamla bíla og aðrar minjar Véltæknisafnsins. Bílarnir standa í löngum röðum umhverfis vélsmiðjuna. Þeim er tegundaraðað að einhverju leyti, sumir eru verulega hrumir, aðrir nokkuð vel útlítandi. Innandyra verður vart þverfótað fyrir tækjum og tólum, bátum, svifnökkva, kveikjuprófunarapparati, mótorhjólum, vindmyllum og úti í glugga trónar hið eilífa Möwe-reiðhjól ásamt gömlum fjarskiptatækjum og fýrlömpum. MYNDATEXTI: Jeppasagan í hnotskurn: Fremstur er Ford GPW-herjeppi frá 1942, sem kom austur með bandaríska setuliðinu. Keyptur af Sölunefnd setuliðseigna í lok seinni heimsstyrjaldar og einn fyrsti jeppinn á Austurlandi. Valdimar eignaðist hann 1965, seldi og keypti svo aftur 15 árum síðar þegar leit út fyrir að bíllinn færi úr fjórðungum. Jeppinn er að langmestu leyti upprunalegur og hefur staðið af sér rúmlega sextíu ára útiveru.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar