Véltæknisafn Valdimars Benediktssonar

Steinunn Ásmundsdóttir

Véltæknisafn Valdimars Benediktssonar

Kaupa Í körfu

Neðan við bæjarskrifstofurnar á Egilsstöðum standa tæplega tvö hundruð gamlir bílar sem bjargað hefur verið frá glötun. ........... Valdimar Benediktsson hefur verið forfallinn bílaáhugamaður frá blautu barnsbeini, ......... Hann byggði 500 fermetra vélsmiðju á Egilsstöðum í kringum 1978 og hún, ásamt 7.000 fermetra lóð umhverfis, hefur nú að geyma gamla bíla og aðrar minjar Véltæknisafnsins. Bílarnir standa í löngum röðum umhverfis vélsmiðjuna. Þeim er tegundaraðað að einhverju leyti, sumir eru verulega hrumir, aðrir nokkuð vel útlítandi. Innandyra verður vart þverfótað fyrir tækjum og tólum, bátum, svifnökkva, kveikjuprófunarapparati, mótorhjólum, vindmyllum og úti í glugga trónar hið eilífa Möwe-reiðhjól ásamt gömlum fjarskiptatækjum og fýrlömpum. MYNDATEXTI: Hefðbundinn austur-þýskur Trabant trónir ofan á Yfa Hors-vörubíl frá sama landi: Trabantar voru frægastir fyrir að vera með tvígengisvél sem blés úr sér bláum reykjarmekki við allar aðstæður. Háværir bílar og talað um að þeir gætu sagt nafnið sitt í hægagangi. Valdimar segir þetta hvoru tveggja hafa verið fremur vond ökutæki.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar