Ásgeir Þórðarson

Hafþór Hreiðarsson

Ásgeir Þórðarson

Kaupa Í körfu

SJÓRÓÐRAR frá Húsavík á nýju ári hófust strax annan janúar er nokkrir bátar héldu í róður. Var þar um að ræða dagróðrarbáta sem reru með dragnót og línu auk þess sem einhverjir þeirra lögðu þorskanet. Ásgeir Þórðarson fór í línuróður á Ásgeiri ÞH 198 og var afli dagsins um hálft annað tonn. Hann fékkst í Skjálfanda á tíu bjóð í leiðindakviku eins og Ásgeir skipstjóri orðaði það, en báturinn er tæplega átta brúttórúmlestir að stærð. MYNDATEXTI: Ásgeir Þórðarson skipstjóri við balana um borð í Ásgeiri ÞH 198.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar