Jón Jósep Snæbjörnsson

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Jón Jósep Snæbjörnsson

Kaupa Í körfu

Jón Jósep Snæbjörnsson, eða Jónsi eins og hann er oftast kallaður, hefur haft í nógu að snúast að undanförnu. Hann hefur ásamt félögum sínum í einni vinsælustu hljómsveit landsins, Í svörtum fötum, verið að fylgja úr hlaði glænýjum hljómdiski, sem er þriðja breiðskífa sveitarinnar til þessa. Sú ber titilinn Tengsl og inniheldur tíu lög, sem öll eru eftir liðsmenn hljómsveitarinnar. Hann leikur líka aðalhlutverk í söngleiknum Grease, sem sýndur hefur verið við miklar vinsældir í Borgarleikhúsinu að undanförnu og segist auk þess vera afskaplega mikill fjölskyldumaður og jólakarl. Jónsi er í sófanum að þessu sinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar