Katrín Atladóttir

©Sverrir Vilhelmsson

Katrín Atladóttir

Kaupa Í körfu

UM helgina stendur yfir meistaramót Tennis- og badmintonfélags Reykjavíkur og taka þátt í því milli 90 og 100 félagar. Mótið hófst á föstudagskvöld og lýkur því í dag. Keppt er í meistaraflokki, A- og B-flokki og fara úrslit fram í dag. Þeir sem lengst eru komnir í íþróttinni keppa í meistaraflokki, í A-flokki eru duglegustu unglingarnir og í B-flokki þeir sem orðnir eru fertugir og eldri. Hér sést Katrín Atladóttir, sem nú æfir í Danmörku, í miklum ham í leik við Tinnu Helgadóttur í einum af mörgum einliðaleikjunum sem fóru fram í gær. Keppnin fer fram í TBR-húsinu við Gnoðarvog.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar