Nýársmót fatlaðra barna og unglinga

Stefán Stefánsson

Nýársmót fatlaðra barna og unglinga

Kaupa Í körfu

Tuttugasta nýársmót fatlaðra barna og unglinga í sundi fór fram með gusugangi og glæsilegum sundsprettum í Sundhöllinni í gær. Að komast alla leið var sumum auðvelt en fyrir aðra litlu minna afrek en erfið fjallganga. Fyrstu setningar þegar bakkanum var náð voru því af ýmsum toga; "í hvaða sæti var ég?" eða "ég er svo þreyttur" og aðrir gleymdu að koma alveg í mark - fannst meira til um öll fagnaðarlætin. Myndatexti: Vignir Gunnar Hauksson tók lífinu með ró og gluggaði í dagskrá mótsins en það var samt ekki laust við spenning.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar