Laugar

©Sverrir Vilhelmsson

Laugar

Kaupa Í körfu

Heilsu- og sundmiðstöðin Laugar í Laugardal í Reykjavík var opnuð með pompi og pragt á laugardaginn. Þórólfur Árnason, borgarstjóri Reykjavíkur, opnaði Laugar formlega og hafði á orði að með tilkomu Lauga væri stigið mikilvægt skref til að festa í sessi heilsuborgina Reykjavík. Séra Pálmi Matthíasson blessaði einnig húsið og starfsemi þess. Myndatexti: Þrjár kynslóðir prófuðu saman tækin. Lilja Eiríksdóttir, Hjörtur Jónsson og Kristján Hjartarson voru afar hrifin af salnum. Lilja, sem tók sig vel út á þrekhjólinu, sagðist aldrei hafa komið í svona tækjasal, en væri vel til í að prófa það áfram.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar