Hveragerði

Margret Ísaksdóttir

Hveragerði

Kaupa Í körfu

Töluverð eftirspurn er nú eftir íbúðarhúsnæði í Hveragerði, en íbúum þar hefur fjölgað langt umfram landsmeðaltal og eru þeir nú um 2.000. Ásókn í nýjar lóðir er því mikil, enda hefur talsvert verið byggt í bænum að undanförnu. Þar eru að verki bæði heimamenn og eins fólk utan af landi og af höfuðborgarsvæðinu. Algengt er að einstaklingar verði sér út um um lóðir og láti byggja fyrir sig en auk þess hafa nokkur öflug byggingarfyrirtæki haslað sér völl í Hveragerði. Þeirra á meðal má nefna Áshamar og Íslenzka aðalverktaka. Byggðin í Hveragerði hefur yfir sér nokkuð sérstakt yfirbragð. Sérbýlið er afar áberandi og einbýlishús í miklum meirihluta. Byggðin er því lágreist en litrík og víða má sjá fallega garða. Í bænum er aðeins eitt fjölbýlishús en töluverður fjöldi par-og raðhúsa MYNDATEXTI: Horft til vesturs yfir svæðið, þar sem einbýlishúsalóðirnar eru til úthlutunar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar