Jólamót umgmenna í Kópavogi

Stefán Stefánsson

Jólamót umgmenna í Kópavogi

Kaupa Í körfu

Orkuboltar fengu rækilega útrás í Kópavoginum síðustu helgina í desember þegar HK og Breiðablik héldu sameiginlega Jólamót Sparisjóðs Kópavogs í knattspyrnu í tuttugusta sinn. Þá voru tæplega þrjú þúsund krakkar á aldrinum 5 til 18 ára komin saman til að leika knattspyrnu og í yngstu flokkunum var hvergi slegið af, þegar ekki voru teknir sprettir á vellinum var farið í eltingarleik eða bara tekið á sprett upp og niður áhorfendabekkina. Myndatexti: Stúlkur úr 5. flokki FH og Stjörnunnar að loknum strembnum framlengdum leik. Efri röð frá vinstri Eyrún Engilbertsdóttir, Hildur Holgeirsdóttir, Ástrós Anna Klemensdóttir, Björk Magnúsdóttir, Birna Berg Haraldsdóttir, Ólöf Rún Gunnarsdóttir og María Sif Óladóttir. Neðri röð Anna María Baldursdóttir, Katrín Klara Emilsdóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Harpa Þrastardóttir, Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir, Hildur Egilsdóttir, Sara Rut Pálsdóttir, Elísabet Guðmundsdóttir, Elísabet Jónsdóttir og fremst situr Hugrún Elvarsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar