Efling VR og Hagfræðistofnun með blaðamannafund

Þorkell Þorkelsson

Efling VR og Hagfræðistofnun með blaðamannafund

Kaupa Í körfu

Efling stéttarfélag, Verslunarmannafélag Reykjavíkur og Starfsmenntaráð kynntu í gær skýrslu sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands tók saman á vegum þeirra um svonefnda menntareikninga. Með því er átt við að launþegar leggi ákveðið hlutfall af launum í séreignasjóð sem nýta á til viðbótar- eða endurmenntunar. Til viðbótar gæti komið framlag frá atvinnuveitanda en stéttarfélögin hafa kynnt hugmynd þess efnis í kjaraviðræðum sem nú eru að hefjast. Hafi launþegi ekki nýtt sparnaðinn þegar hann lætur af störfum vegna aldurs getur hann tekið hann út sem viðbótarlífeyri. Myndatexti: Garðar Vilhjálmsson, fræðslustjóri Eflingar stéttarfélags, stýrði fundi þar sem skýrslan var kynnt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar