Vegurinn Brennur

Jim Smart

Vegurinn Brennur

Kaupa Í körfu

Vegurinn brennur, nýtt leikrit eftir Bjarna Jónsson, verður frumsýnt á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins annað kvöld. Í verkinu er horft á samskipti fólks í að því er virðist ofurvenjulegri íslenskri fjölskyldu. Meðan Örn stendur í stórræðum sem bæjarstjóri norður í landi, stendur eiginkona hans á krossgötum í höfuðborginni og Kristján bróðir hans einbeitir sér að því að hjálpa syni sínum, Sigurði, að fóta sig að nýju eftir meðferð. Myndatexti: Ólafur Darri Ólafsson í hlutverki sonarins ódæla, Sigga, á Smíðaverkstæðinu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar