Eva Magnúsdóttir

Eva Magnúsdóttir

Kaupa Í körfu

Hristir upp í gráu sellunum Eva Magnúsdóttir Námið býður bara upp á möguleika EVA Magnúsdóttir, kynningarfulltrúi Símans, segist trúa á símenntun og því hafi hún skellt sér í MBA-námið. "Ég trúi því að maður verði alltaf öðru hverju að hrista duglega upp í sjálfum sér," segir hún. Eva er þjóðhátta- og fjölmiðlafræðingur og segir að sig hafi í mörg ár langað til að fara í framhaldsnám. "Ég var á sínum tíma mest að spá í að fara til Bandaríkjanna," segir hún, "en þegar farið var að bjóða upp á þetta nám hér í Háskóla Íslands, greip ég tækifærið. Mér fannst betra að þurfa ekki að rífa fjölskylduna upp, auk þess sem ég gat haldið áfram í mínu starfi." Aðspurð hvers vegna hún hafi viljað breyta til segir Eva að henni hafi fundist hún vera farin að stefna á of þrönga braut. MYNDATEXTI: Eva Magnúsdóttir

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar