Geir Thorsteinsson

Geir Thorsteinsson

Kaupa Í körfu

Hristir upp í gráu sellunum Geir Thorsteinsson Aldur er afstæður EINN nemandinn í hópnum er Geir Thorsteinsson, framkvæmdastjóri kjararannsóknanefndar opinberra starfsmanna. Hann segist lengi hafa ætlað sér í MBA-námið. "Ég ætlaði í fyrsta hópinn en var að fara utan þegar námið hófst, svo ég ákvað að sjá til hvernig þetta plumaði sig í fyrstu keyrslu. Svo stóðst ég ekki mátið," segir Geir og kveður tvennt hafa komið til. "Annars vegar endurvinnsla á sjálfum mér, hins vegar markaðslegar forsendur. Það er aldrei að vita nema maður sjái einhver tækifæri í þessu námi. Aðallega var þetta þó til þess að rækta mig sjálfan vegna þess að þetta nám hristir heldur betur upp í gráu sellunum." Geir er fyrir með cand. oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, sem og próf frá Verslunarskóla Íslands. Hann segir það engu að síður góða hugmynd að bæta við sig frekara námi. MYNDATEXTI: Geir Thorsteinsson

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar