Sigurbjörn og Andri Þór

Kristján Kristjánsson

Sigurbjörn og Andri Þór

Kaupa Í körfu

Akureyri | Mikil hálka hefur verið á götum Akureyrar síðustu daga og ekki síst eftir að það fór að rigna. Ökumenn hafa þurft að sýna sérstaka aðgát og þá hafa gangandi vegfarendur einnig átt erfitt með að fóta sig á svellinu í bænum. Helstu gönguleiðir hafa þó verið sandbornar, m.a. að skólum bæjarins. Félagarnir Sigurbjörn og Andri Þór voru að ræða málin við snjóskafl á leiðinni heim úr Giljaskóla í gær og þeir voru nú ekki alveg sáttir við tíðarfarið og töldu mikla betra að fá snjó í staðinn fyrir rigningu. "Maður blotnar miklu meira í rigningu," sagði Sigurbjörn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar