Samkomuhúsið

Kristján Kristjánsson

Samkomuhúsið

Kaupa Í körfu

TVÖ umfangsmikil verk á vegum Akureyrarbæjar eru komin á lokastig. Annars vegar framkvæmdir við Samkomuhúsið og hins vegar við Amtsbókasafnið en í báðum tilvikum eru framkvæmdir aðeins á eftir áætlun og þá aðallega vegna þess að verkin urðu umfangsmeiri en upphaflega var gert ráð fyrir. Framkvæmdir við endurbætur og viðbyggingu við Samkomuhúsið hófust sl. vor og átti að vera lokið fyrir jól. Guðríður Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar, sagði að vinnu við sjálft húsið yrði lokið í kringum 20. janúar nk. Þá ætti eftir að ljúka vinnu við brekkuna og gatnaframkvæmdum við Samkomuhúsið MYNDATEXTI: Endurbætur á Samkomuhúsinu eru á lokastigi og þar voru menn hressir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar