Steinunn Ólína og Jóhanna Vigdís í Chicago

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Steinunn Ólína og Jóhanna Vigdís í Chicago

Kaupa Í körfu

Hansa leikur Kötu Zetu Jones og ég er Rene Zellweger," segir Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona hlæjandi þegar hún er spurð um hvaða hlutverk hún og Jóhanna Vigdís Arnardóttir hafa í söngleiknum Chicago sem frumsýndur verður í Borgarleikhúsinu 18. þessa mánaðar. "Það er þetta sem fólk spyr um - það vill fá að vita hvora þeirra við leikum." Jóhanna tekur undir þetta: "Það er eins og enginn hafi leikið þessi hlutverk áður nema þær eða að þær séu persónurnar í söngleiknum." Þær stallsystur vísa þarna til leikkvennanna í samnefndri kvikmynd sem sýnd var í fyrra við mikla athygli. Hins vegar segja þær það ekkert trufla sig að hafa þessar þekktu bandarísku leikkonur á bakinu við undirbúninginn nú enda þvælist þær lítið fyrir þeim.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar