Vatnstjón

Kristján Kristjánsson

Vatnstjón

Kaupa Í körfu

VATN flæddi í kjallara nýbyggingar Ráðhússins á Akureyri í fyrrinótt og urðu þar nokkrar skemmdir. Slökkvilið Akureyrar var kallað til aðstoðar við að hreinsa upp vatnið. Guðmundur Pétursson, umsjónarmaður hússins, sagði að tvær dælur í brunni utan við húsið hefðu slegið út með fyrrgreindum afleiðingum. Kjallarinn er rúmir 200 fermetrar að stærð og þegar Guðmundur kom til vinnu í gærmorgun var um þriggja cm vatnslag yfir öllu gólfinu. Hann sagði um nokkurt tjón að ræða en það hafði ekki verið metið að fullu í gær. MYNDATEXTI: Guðmundur Pétursson umsjónarmaður Ráðhússins á Akureyri mundar sópinn í kjallaranum í gærmorgun, þar sem vatn flæddi um allt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar