Vetrarveður á Norðurlandi - Höskuldur með Bellu

Jón Sigurðsson

Vetrarveður á Norðurlandi - Höskuldur með Bellu

Kaupa Í körfu

Illviðri Undanfarna tvo daga hefur illviðri leikið um norðvestanvert landið, spillt færð og skólahald lagst niður. Þau Höskuldur Erlingsson, lögreglumaður á Blönduósi, og fíkniefnahundurinn Bella létu þó veðrið ekki aftra sér frá því að líta eftir deginum og fá sér hreyfingu og frískt loft í leiðinni. Höskuldur hafði þó á orði að gangan upp kirkjuhólinn á móti norðanbálinu hefði tekið svolítið á og bitið í kinnar en Bella lét sér fátt um finnast og þefaði lítillega af fréttaritara svona í öryggisskyni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar