Snjór - Börnin leika sér

Kristján Kristjánsson

Snjór - Börnin leika sér

Kaupa Í körfu

HÁIR snjóruðningar hafa hlaðist upp um allan um bæinn, eftir umfangsmikinn snjómokstur tuga snjóruðningstækja síðustu daga. Umferðin hefur þó gengið þokkalega miðað við aðstæður og óhappalaust, að sögn lögreglu. Áfram er gert ráð fyrir norðaustlægum áttum með éljagangi í dag en að veður fari kólnandi þegar líður á daginn. Ekki eru allir jafnir ánægðir með hversu mikið hefur snjóað síðustu daga en börnin á leikskólanum Sunnubóli voru hin ánægðstu með tíðarfarið og léku við hvern sinn fingur á skólalóðinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar