Formenn landssambanda innan ASÍ funduðu

Þorkell Þorkelsson

Formenn landssambanda innan ASÍ funduðu

Kaupa Í körfu

Formenn landssambanda innan ASÍ funduðu í gær með oddvitum ríkisstjórnarflokkanna, Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni, Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og nokkrum embættismönnum. Myndatexti: Fundurinn í Stjórnarráðinu í gær var fjölmennur en frá vinstri sitja við borðið Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar, Níels S. Olgeirsson, formaður MATVÍS, Halldór Björnsson, formaður Starfsgreinasambandsins, Halldór Árnason, forsætisráðuneytinu, Árni Magnússon félagsmálaráðherra, Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra, Davíð Oddsson forsætisráðherra, Baldur Guðlaugsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu, Illugi Gunnarsson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, og Guðmundur Gunnarsson, formaður Rafiðnaðarsambandsins. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambandsins, komst ekki á fundinn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar