Idol stjörnuleit

Jim Smart

Idol stjörnuleit

Kaupa Í körfu

ÚRSLITAVIÐUREIGNIN í Idol-Stjörnuleit fór fram í Vetrargarðinum í Smáralind í gærkvöld frammi fyrir fullu húsi með rífandi stemmningu. Idol-samkvæmi voru haldin um allt land, þau stærstu á heimavígstöðvum keppendanna. Aðdáendur sjómannsins Kalla Bjarna skemmtu sér og studdu sinn mann í félagsheimilinu Festi í Grindvík, Norðlendingar hvöttu Önnu Katrínu í Sjallanum á Akureyri og aðdáendur Jóns Sigurðssonar komu saman á NASA á Austurvelli. Það var sama hvar ljósmyndari Morgunblaðsins bar niður, alls staðar var rífandi stemmning og tilfinningahitinn ætlaði allt um koll að keyra MYNDATEXTI: Guðrún Árný, María Ósk og Íris Anna horfðu á Idol-Stjörnuleit á NASA og voru ekki í neinum vafa um hvern þær studdu. Fjölmargir voru mætti á NASA til þess að styðja Jón Sigurðson.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar