Söngkeppni Óðals

Guðrún Vala

Söngkeppni Óðals

Kaupa Í körfu

Borgarnes | Halldór Óli Gunnarsson ásamt þeim Alexander Ríkharðssyni og Arnari Helga Jónssyni unnu í söngkeppni Óðals sem haldin var sl. fimmtudagskvöld. Þeir spiluðu lagið "Tired of you" með Foo fighters og heillaði söngur Halldórs dómnefndina sem og aðra áheyrendur, en fullt var út úr dyrum á keppninni. Að sögn dómnefndar var valið erfitt því margir hæfileikaríkir unglingar úr grunnskólunum í Borgarbyggð tóku þátt. Keppnin er árviss viðburður og munu sigurvegararnir taka þátt í söngkeppni Samfés sem haldin verður laugardaginn 24. janúar í Laugardagshöllinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar