Hópur á verkstæði

Hópur á verkstæði

Kaupa Í körfu

Egilsstaðir | Dagana 12.-14. janúar voru haldnir svokallaðir Samfylkingardagar á Austurlandi. Af því tilefni heimsóttu þau Össur Skarphéðinsson, Katrín Júlíusdóttir, Kristján Möller og Einar Már Sigurðarson fyrirtæki og stofnanir í Neskaupstað, á Eskifirði, Reyðarfirði, Seyðisfirði og Héraði. Segir í fréttatilkynningu að fundir með heimamönnum hafi verið vel heppnaðir og augljóst að bjartsýni og framkvæmdagleði einkenni mannlíf á Austurlandi þessi misserin. Samfylkingarfólk heimsótti m.a. Bifreiðaverkstæði Ásbjörns á Eskifirði á yfirreið sinni um Austurland á dögunum og þar er myndin tekin

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar