Jórunn Viðar
Kaupa Í körfu
Það er mikil sál í þessu húsi þar sem það teygir sig tignarlega til himins á Laufásveginum. Hér fæddist Jórunn Viðar, tónskáld og píanóleikari, og hér býr hún enn. Í einu horninu stendur flygillinn, sem eflaust gæti sagt margar skemmtilegar sögur af viðureign tónskáldsins við tónlistargyðjuna, mætti hann tala. Það hefur vissulega verið skammt stórra högga á milli hjá Jórunni Viðar að undanförnu og engan bilbug á henni að finna þótt hún sé nýlega orðin 85 ára. Jórunn hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna nú í vikunni og fyrir jólin kom út geisladiskurinn Mansöngur, en á honum eru tvær ballettsvítur fyrir hljómsveit, Eldur og Ólafur Liljurós, sem Jórunn samdi á árunum 1950 og 1952, og Mansöngur fyrir Ólafs rímu Grænlendings, kórverk samið um 1960. MYNDATEXTI: Jórunn Viðar hlaut heiðursverðlaun Íslensku tónlistarverðlaunanna í vikunni. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti Jórunni viðurkenninguna í Þjóðleikhúsinu
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir