Idol stjörnuleit - Kalli Bjarni í Festi

Garðar

Idol stjörnuleit - Kalli Bjarni í Festi

Kaupa Í körfu

Kalli Bjarni, sigurvegari í Idol, hrærður yfir góðum móttökum í Grindavík KARLI Bjarna Guðmundssyni, eða Kalla Bjarna, fyrstu Idol-stjörnu Íslands, var fagnað vel og innilega við komuna heim til Grindavíkur aðfaranótt laugardags eftir að sigurinn var í höfn. "Þetta var alveg rosalegt. Það var tekið á móti mér með blysum og þetta var rosalega flott. Það var búið að mynda göng í gegnum mannmergðina þar sem allir klöppuðu og svo bara löbbuðum við inn og beint upp á svið. MYNDATEXTI: Kalli Bjarni segist hrærður yfir hversu góðar móttökur hann fékk í félagsheimilinu Festi í Grindavík. Stuðningsmenn hans biðu úti meða blys þegar Kalli Bjarni, og aðrir keppendur sem komust í 32 manna úrslit, komu í rútu beint úr Smáralind. Grindvíkingar og gestir þeirra skemmtu sér síðan fram á rauða nótt.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar