Asparholt 1-6 Álftanesi

Asparholt 1-6 Álftanesi

Kaupa Í körfu

Álftanes hefur ávallt haft mikið aðdráttarafl fyrir marga, en friðsæld, opin svæði og útsýni eru þar áberandi. Magnús Sigurðsson kynnti sér nýbyggingar Húsbygg ehf. við Asparholt og Birkiholt. Náttúrufegurð er mikil á Álftanesi eins og allir þekkja. Mikið er þar af opnum svæðum og stórar tjarnir eins og Kasthúsatjörn, Lambhúsatjörn, Bessastaðatjörn og Skógtjörn setja mikinn svip á umhverfið, ekki hvað sízt á sumrin þegar þær iða af fuglalífi. Víða eru mjög skemmtilegar fjörur og aðgangur að góðri strönd er langt umfram það sem gengur og gerist annars staðar. MYNDATEXTI: Frá vinstri: Þórhallur Guðjónsson hjá Garðatorgi eignamiðlun, Björgvin Magnússon og Árni Jóhannesson, framkvæmdastjórar og eigendur Húsbygg ehf., Stefán Hallsson arkitekt, hönnuður bygginganna, Magnús Geir Pálsson hjá fasteignasölunni Borgum og Bjarni Árnason byggingatæknifræðingur. Í baksýn sést nýbyggingasvæðið og fjölbýlishús við Birkiholt, sem Húsbygg byggði á síðasta ári, þar sem allar íbúðirnar seldust strax

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar