Jóhannes Long ljósmyndari

Jóhannes Long ljósmyndari

Kaupa Í körfu

Nánast hver einasta myndavél sem Jóhannes Long ljósmyndari notar við vinnu sína var tekin í innbroti í ljósmyndastofu hans í Ásholti á sunnudagsmorgun, samtals að verðmæti rúmar fjórar milljónir króna. Á meðal þess sem var tekið var ný tölva sem hefur að geyma nýjasta hlutann af filmusafni hans, skanni, fjöldinn allur af linsum og öðrum fylgihlutum auk fjölmargra myndavéla. Myndatexti: Jóhannes Long með hluta af þeim myndavélum og linsum sem stolið var.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar