Dalvíkursnjór

Kristján Kristjánsson

Dalvíkursnjór

Kaupa Í körfu

Snjóruðningsmenn á Dalvík hafa haft í nógu að snúast síðustu daga en í gærmorgun var búið að opna allar götur fyrir umferð, að sögn Þorsteins Björnssonar veitustjóra. Mjög snjóþungt var á Dalvík eftir mikla snjókomu síðustu daga. Myndatexti: Snjóþungt í Öldugötu: Mjög snjóþungt er á Dalvík eftir mikla úrkomu síðustu daga en í gærmorgun var búið að ryðja götur bæjarins. Það safnast jafnan mikill snjór í Öldugötu og þar náði snjórinn upp undir kúpulinn á lausastaur í götunni. Nágrannarnir Ólöf Hafsteinsdóttir sem býr í Bárugötu og Sigurður Alfreðsson sem býr við Drafnarbraut sjást hér með hunda sína við ljósastaur í Öldugötu. Einn hvolpa Sigurðar fékk meira að segja að spóka sig upp á kúplinum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar